Loftslagsdagurinn 2026
Loftslagsdagurinn 2026 er fyrsti viðburðurinn á Íslandi sem hlýtur Svansvottun. Markmið Svansvottuninnar er að draga úr umhverfisáhrifum viðburðarins. Gestir Loftslagsdagsins geta meðal annars gætt sér á lífrænum veitingum og nýtt Hopp sér að kostnaðarlausu til að komast til og frá viðburðinum
Loftslagsdagurinn fer fram þann 28. október í Svansvottuðu ráðstefnurými Hörpu.
Langar þig að vita meira? Hafðu samband við okkur svanurinn@uos.is
Hvað felst í Svansvottun Loftslagsdagsins?
Svansvottun Loftslagsdagsins 2026 staðfestir að viðburðurinn uppfyllir metnaðarfullar kröfur um umhverfisáhrif og sjálfbærni.
Þegar viðburðir eru Svansvottaðir er rýnt í alla þætti í skipulagningu og framkvæmd þeirra sem geta haft neikvæð áhrif á umhverfið. Skipuleggjendur viðburða þurfa að uppfylla fjölbreyttar kröfur til þess að minnka orkunotkun, losun gróðurhúsalofttegunda, sóun, úrgang og notkun skaðlegra efna.
Dæmi um aðgerðir á Loftslagsdaginn 2026:
- Aukið framboð af lífrænt vottuðum hráefnum og grænmetis eða grænkera veitingum eru á boðstólnum, fjölda rétta haldið í lágmarki til þess að minnka matarsóun og enginn einnota borðbúnaður
- Lokaðir kælar á veitingasvæði til að minnka orkunotkun
- Orkusparandi hljóð- og myndkerfi
- Endurhlaðaðanlegar rafhlöður í rafmagnstækjum
- Takmörkun á útprentuðum ráðstefnugögnum og strangar kröfur um gjafapoka eða annan varning,
- Endurnýtanlegar skreytingar
- Umhverfisvottaður salernispappír og ræstivörur
- Sýnileg og vel merkt flokkunaraðstaða fyrir þátttakendur og starfsfólk
Sjá viðmiðin í heild sinni hér.
Mörg tækifæri til umbóta á ráðstefnum og fundum
Mikill fjöldi ráðstefna og stórra funda er haldinn á Íslandi á ári hverju. Umhverfisáhrif viðburðanna geta verið talsverð og það eru fjölmörg tækifæri til umbóta. Væri til dæmis hægt að
- sleppa óþarfa gjafapokum?
- draga úr útprentun dagskráa og bæklinga?
- minnka magn matar og drykkja til að draga úr matarsóun?
- hvetja þátttakendur til að velja umhverfisvænni ferðamáta?
Með því að skoða og fjalla um umhverfisáhrif viðburða eykst vitund starfsfólks og gesta, fyrirtæki geta bætt ímynd sína og það skapar eftirspurn í samfélaginu eftir þjónustu og lausnum sem taka mið af umhverfinu.
„Það er mikilvægt fyrir okkur hjá Umhverfis- og orkustofnun að sýna gott fordæmi og halda umhverfisvænni viðburði. Svansvottunarferlið reyndist frábært verkfæri á þessari vegferð. Nú skorum við bara á aðrar stofnanir og fyrirtæki að gera það sama.“ segir Sigurður Ingi Friðleifsson, sviðsstjóri loftslags og orkuskipta.